Færsluflokkur: Brauð og annað bakkelsi
Laugardagur, 1. maí 2010
Súkkulaði skúffukaka
110 gr. smjör
1 bolli sykur
2 egg
1 tsk. vanilludropar
1/3 bolli kakó
1/2 bolli hveiti
1/4 tsk. salt
1/4 tsk. lyftiduft
Krem
45 gr. smjör (mjúkt)
3 msk. kakó
1 msk. hunang
1 tsk. vanilludropar
2/3 bolli flórsykur
Brillíant skúffukaka, fljótleg, auðveld, ótrúlega góð og passlega stór. Og það þarf ekki einu sinni að draga fram hrærivélina. Bræðið smjörið í potti takið pottinn af hellunni og hrærið í sykri, eggjum, vanilludropum, kakói, hveiti, salti og lyftidufti með píski. Hellið í smurt hveitistráð form sem er ca. 20x20 cm.
Bakað við 175°C í 25-30 mín.
Útbúið kremið á meðan kakan bakast en best er að setja það á kökuna á meðan hún er enn vel heit.
Brauð og annað bakkelsi | Breytt 29.1.2012 kl. 11:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 26. apríl 2010
Vanillubúðingsbollur
1/2 l. mjólk
5 tsk. þurrger
100 gr. smjörlíki
130 gr. sykur
1 - 2 tsk. kardimommur (steyttar)
750 gr. hveiti (5 1/2 - 6 bollar)
Vanillubúðingur.
Royal 1/2 pk + 200 ml. mjólk
Glassúr krem
60 gr. brætt smjör
1 1/2 b. flórsykur
1 tsk. vanilludropar
mjólk eftir þörfum
Kókosmjöl
Útbúið búðinginn fyrst svo hann verði tilbúinn þegar á að nota hann.
Deigið útbúið eins og annað gerdeig. Fyrri hefing er um 1 tími eða þar til deigið hefur tvöfaldað sig. Þá eru búnar til bollur (ca. 16 stk.) gott að þrýsta aðeins á þær með lófanum svo þær verði aðeins flatar. Seinni hefing er svo um 15 mínútur og þá er gerð hola í bollurnar á miðjunni fyrir búðinginn, vanillubúðingur settur í holuna (1-2 msk.), ekki fylla alveg því bollurnar hefast aðeins eftir að þær fara í ofninn.
Bakaðar við 225°C í ca. 15 mín.
Kremið sett á t.d. eins og meðfylgjandi mynd sýnir og kókosmjöli stráð yfir.
Brauð og annað bakkelsi | Breytt 29.1.2012 kl. 11:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 10. apríl 2010
Banana muffins
3 bananar (stappaðir)
3/4 bolli sykur
1 egg
1/3 bolli smjör (bráðið)
1 1/2 bolli hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
1/2 tsk. salt
Bakað við 175°c í um 17 mínútur.
24 muffins.
Brauð og annað bakkelsi | Breytt 29.1.2012 kl. 11:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 5. apríl 2010
Epla muffins
1 1/4 bolli púðursykur
2/3 bolli olía
1 egg
1 bolli súrmjólk
1 tsk. matarsódi
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
1 tsk. kanill
1 tsk. vanilludropar
2 1/2 bolli hveiti
1 bolli rifið epli
Bakað við 170°c í 22 mín.
um 28 muffins.
Brauð og annað bakkelsi | Breytt 29.1.2012 kl. 11:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 19. mars 2010
Gulrótarkaka
3 dl. sykur
2 dl. olía
4 egg
4 1/2 dl. hveiti
1 tsk. vanilludropar
2 tsk. lyftiduft
½ tsk. salt
1 tsk. matarsódi
2 tsk. kanill
400 gr. gulrætur (rifnar)
Bakað á 175ºC í ca 45 mín (ca. 75 mín í springformi)
Krem:
120 gr. sólblóma
3½ dl. flórsykur
2 tsk. vanilludropar
200 gr. rjómaostur
Brauð og annað bakkelsi | Breytt 5.4.2015 kl. 15:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 14. mars 2010
Rósmarín brauð
Þessi uppskrift dugar í 2 brauðhleifa.
2 bollar volgt vatn
1 msk. þurrger
1 msk. sykur
1 msk. salt
1/4 bolli olía
1/2 tsk. ítölsk kryddblanda
1 msk. rósmarín (mylja aðeins)
1/4 tsk. svartur pipar
5-6 bollar hveiti eða eftir þörfum.
Fyrri hefing ca. klukkutími og seinni hefing um 30 mín.
Bakað við 190°c í um 40 mín.
Brauð og annað bakkelsi | Breytt 29.1.2012 kl. 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 28. febrúar 2010
Brauð
4 1/2 tsk. þurrger (2 bréf)
2 bollar volgt vatn
1 msk. sykur
1/4 bolli olía
1 msk. basil þurrkað
1 msk. oregano þurrkað
1 msk. salt
1 tsk. hvítlauksduft
1 tsk. laukduft
5-6 bollar hveiti eða eftir þörfum.
Fyrri hefing er ca. klukkutími og seinni hefing ca. 30 mín.
Bakað við 190°c í ca 35-40 mín
Brauð og annað bakkelsi | Breytt 29.1.2012 kl. 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)